11. október 2021

Ný heimasíða Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi  

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa opnað nýja heimasíðu. Ákveðið var í fyrrahaust að ráðast í endurnýjun síðunnar, enda var sú gamla komin til ára sinna. Leitað var hófanna hjá nokkrum fyrirtækjum og niðurstaðan varð sú að ganga til samninga við Sendiráðið á Höfðabakka. Það reyndist klók ráðstöfun og samstarfið við Sendiráðið gekk vonum framar og allt stóð eins og stafur á bók. 

Tilgangurinn með því að búa til nýja heimasíðu var fyrst og fremst sá að skerpa hana og gera auðveldari í umgengni, sem sagt; notendavænni. Auk þess sem nokkrum nýjum hlutum var bætt við. Enn er verið að flytja efni af gömlu síðunni yfir á þá nýju, en búast má við að því ljúki á næstu dögum. Það er von okkar að þeir sem þurfa að sækja sér fróðleik, eða upplýsingar um íslenskan sjávarútveg, eigi auðveldara um vik á nýrri heimasíðu.