8. september 2022

Orkuskipti á hafi - Raunsæi, vonir og væntingar

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi bjóða til fundar fimmtudaginn 8. september kl. 09:00-10:00 í fundarsalnum Hyl á fyrstu hæð í Borgartúni 35.

Þar mun Arnstein Eknes frá norska ráðgjafarfyrirtækinu DNV fræða fundarmenn um það sem fram undan er í orkuskiptum á hafi. Arnstein Eknes hefur lengi verið viðriðinn skipatækni og hönnun og er eftirsóttur fyrirlesari og ráðgjafi.