19. október 2021
Sjávarútvegsdagurinn 2021
Sjávarútvegsdagurinn, í samstarfi Deloitte, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtaka atvinnulífsins, verður haldinn þriðjudaginn 19. október í Silfurbergi, Hörpu og í beinu streymi á netinu.
Fundurinn hefst klukkan 8:30 og stendur til klukkan 10:00.
Léttur morgunverður frá klukkan 8:00.
Yfirskrift Sjávarútvegsdagsins í ár er: Vel í stakk búinn og vísar til þess að sjávarútvegur og fiskeldi komust nokkuð klakklaust í gegnum erfitt ár í fyrra og eru þess albúin að takast á við framtíðina.
Skráning fer fram á deloitte.is
Dagskrá
‒ Setning og fundarstjórn
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS
Sjá glærur hér.
‒ „Hin heimskulega og skammsýna rányrkjustefna verður að víkja.“ Fimmtíu ára sjónarmið í fullu gildi.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands
‒ Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja og fiskeldis árið 2020
Jónas Gestur Jónasson, löggildur endurskoðandi hjá Deloitte
Sjá glærur hér.
‒ Samspil sjávarútvegs og loftslagsmála
Hildur Hauksdóttir, sérfræðingur í umhverfismálum hjá SFS
Sjá glærur hér.