26. apríl 2024
Alþjóðlega sjávarútvegssýningin 2024
Alþjóðlega sjávarútvegssýningin (Seafood Expo Global) fór fram í spænsku borginni Barcelona á dögunum og tók fjöldi íslenskra fyrirtækja í sjávarútvegi þátt í sýningunni.
Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum en alls tóku 2.244 fyrirtæki þátt frá 87 löndum. Fyrirtæki nýta þennan vettvang til að kynna sjávarafurðir sínar, vörur eða þjónstu í þeim tilgangi að mynda ný viðskiptasambönd eða treysta þau sem fyrir eru.
Mikið líf, ys og þys var á sýningarsvæðinu sem taldi fimm stóra sali, eða rúmlega 50.000 fermetra. Metþátttaka var á sýningunni í ár en yfir 35.000 lögðu leið sína á svæðið þar sem sýningin fór fram í þrítugasta sinn.
Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki í alþjóðlegum samanburði
Um 98% íslenskra sjávarafurða eru fluttar út og seldar á erlendum mörkuðum og því getur vettvangur eins og alþjóðlega sjávarútvegssýningin skipt sköpum fyrir áframhaldandi gott gengi við sölu íslenskra afurða á erlendri grundu.
Rúmlega þrjátíu íslensk fyrirtæki voru með bása á sýningunni í ár. Þá sóttu yfir þúsund Íslendingar sýninguna úr sjávarútvegi og tengdum greinum.
„Íslendingar eru fremstir á heimsvísu þegar veiðar, vinnsla og sala á fiski á í hlut. Við flytjum nær allar okkar sjávarafurðir á erlenda markaði þar sem samkeppnin er hörð. Til að standast þær kröfur sem gerðar eru á erlendum mörkuðum og skara fram úr þurfa íslensk fyrirtæki í sjávarútvegi svigrúm til að halda áfram að fjárfesta í nýjustu tækni og lausnum þegar kemur að sjálfbærum og umhverfisvænum veiðum, ásamt stöðugu starfsumhverfi. Það var, sem fyrr, magnað að sjá fjölda íslenskra fyrirtækja taka virkan þátt í sýningunni í ár þar sem íslenski fiskurinn stal senunni, einu sinni sem oftar,“ sagði Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS.
Matvælaráðherra Íslands, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, sótti sýninguna einnig heim og átti gott samtal við fulltrúa íslensku fyrirtækjanna.




