16. september 2022

Endurvinnsla á veiðarfærum frá Íslandi

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og norska fyrirtækið Nofir hafa komist að samkomulagi um samstarf til að auka enn frekar endurnotkun og endurvinnslu á veiðarfærum frá Íslandi sem innihalda plast. Nofir mun taka við úreltum og gömlum veiðarfærum og netum bæði frá sjávarútvegi og fiskeldi.

Nofir er umsvifamikið í meðhöndlun á gömlum og slitnum veiðarfærum og hefur síðan árið 2011 tekið á móti um 56 þúsund tonnum af veiðarfærum, víðs vegar að úr álfunni. Fyrirtækið hefur á liðnum árum verið í samstarfi við Egersund á Eskifirði um að koma veiðarfærum til endurvinnslu. SFS og veiðafæragerðir víðsvegar um landið munu í sameiningu standa að söfnun á veiðarfærum. Fyrst og fremst er leitast við að endurnota eða endurvinna veiðarfærin, en það sem af gengur er notað til orkuvinnslu.

Öll sem vilja geta komið notuðum og úr sér gengnum veiðarfærum til móttökustöðva sem eru víðsvegar um land. Móttökustöðvarnar sjá um að pakka og setja veiðarfærin í gám og senda til Nofir. Ekkert gjald er greitt fyrir að skila flokkuðum veiðarfærum á móttökustöð hjá Hampiðjunni, Ísfelli, Egersund, Veiðarfæragerð Skinneyar-Þinganess, Netaverkstæði G.Run og Veiðarfæraþjónustunnar í Grindavík.  

„Við erum mjög ánægð með að hafa komist að samkomulagi við SFS og með því aðstoðað við að íslenskur sjávarútvegur, fiskeldi og veiðafæragerðir geti staðið undir framleiðendaábyrgð sem þau bera á veiðarfærum úr plasti. Sambærileg ábyrgð verður tekin upp í Noregi árið 2025“, segir Øistein Aleksandersen, framkvæmdastjóri Nofir. „Við höfum þegar fengið nokkra  gáma frá Íslandi og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.“ 

Hildur Hauksdóttir sérfræðingur í umhverfismálum hjá SFS segir að leyfi til að flytja út blönduð efni til Nofir sé nýkomið í hús og því strax hægt að auka endurvinnslu. Þetta sé skref í vinnu sjávarútvegs og fiskeldis að gera enn betur í umhverfismálum. „Endurskipulagning á veiðarfærakerfinu hefur verið í gangi undanfarin ár, við höfðum annað kerfi, en þetta er mun betra“, segir Hildur.