12. janúar 2024

Upplýsingar um sjókvíaeldi á einum stað

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa tekið saman allar helstu upplýsingar um fiskeldi í sjó og birt á einum stað – fiskeldi.sfs.is

Vefurinn fiskeldi.sfs.is er í stöðugri þróun og hægt er að senda inn athugasemdir eða spurningar á fiskeldi@sfs.is eða í gegnum spurningabox á vefnum.

Sjókvíaeldi er vaxandi atvinnugrein á Íslandi. Markmið Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi er að tryggja bestu mögulegu skilyrði í átt að því að sjálfbært sjókvíaeldi verði burðarstoð í verðmætasköpun hér á landi, í sátt við umhverfi og samfélag.