27. apríl 2026
Hringferð SFS 2026 hefst af krafti
Hátt í fimmtíu sóttu fund Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á Hótel Ísafirði í dag, 27. apríl. Fundurinn hófst með fyrirlestri frá Konráði S. Guðjónssyni hagfræðingi og bar hann saman stöðuna í sjávarútvegi og fiskeldi hér á landi og í löndum ESB. Óhætt er að segja að ekki hafi hallað á Ísland í þeim samanburði. Nánast sama hvaða mælikvarði var notaður.
Þorsteinn Másson, sérfræðingur í fiskeldi hjá SFS, tók næstur til máls og fór yfir fiskeldi á Íslandi. Fram kom í máli hans að óvíða eru gerðar eins stífar umhverfiskröfur til fiskeldis og á Íslandi. Þá var einnig áhugavert að sjá að fólksfjölgun á Vestfjörðum helst í hendur við aukna framleiðslu í fiskeldi á undanförnum árum.
Góðar umræður urðu eftir ávörpin. Spurt var um ásýnd sjávarútvegs, hvalveiðar og hversu sjálfbærar fiskveiðar væru í raun við Ísland í ljósi þess að nú væru margar tegundir horfnar af Íslandsmiðum.
Áfram verður haldið og næsti fundur er á Akureyri 28. apríl og 29. apríl á Eskifirði.


