1. apríl 2026

Til hamingju Sea Thru

Nýsköpunarfyrirtækið Sea Thru er handhafi hvatningarverðlauna Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi í ár. Verðlaunin voru afhent á ársfundi samtakanna á föstudaginn. Framkvæmdastjóri Sea Thru, Arna Bryndís Baldvins McClure, segir að fyrirtækið sérhæfi sig í að þróa hugbúnaðarlausn sem safnar saman upplýsingum frá aðilum í virðiskeðju sjávarfangs. Síðan séu upplýsingarnar tengdar saman og úr verði heildarmynd af ferðalagi fisksins frá veiðum til viðskiptavina. Svolítið eins og Google-maps, bara fyrir fisk!

Arna tók við verðlaununum úr hendi Heiðmars Guðmundssonar starfsmanns SFS.

Arna tók við verðlaununum úr hendi Heiðmars Guðmundssonar, fulltrúa SFS.