27. júní 2024

Nýtt húsnæði Tækniskólans

Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði en skuldbindandi samkomulag þess efnis var undirritað í dag. Stjórnvöld, Hafnarfjarðabær og Tækniskólinn standa að uppbyggingunni og eru áætluð verklok haustið 2029.

Tækniskólinn er einn af burðarásum í iðn-, starfs- og tæknináms á höfuðborgarsvæðinu. Skólinn er einkarekinn og var stofnaður árið 2008 þegar Iðnskólinn í Reykjavík og Fjöltækniskólinn sameinuðust. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi eru einn eigandi skólans og sitja fulltrúar samtakanna í stjórn skólans.

Nú byggjum við af stórhug til framtíðar og það er löngu tímabært að sameina starfsemina á einum stað. Verkefnið hefur verið lengi í undirbúningi og við erum afar þakklát stjórnvöldum og Hafnarfjarðarbæ fyrir þann stuðning og traust sem þau sýna skólanum með aðkomu sinni að þessu stóra verkefni. Ábyrgð skólans er mikil og við höfum undirbúið verkefnið af kostgæfni og erum sannfærð um að nýbygging skólans og hugmyndafræðin að baki grunnhönnun hennar muni stórefla iðn-, starfs- og tækninám í landinu,“ sagði Egill Jónsson, formaður stjórnar Tækniskólans, í tilkynningu stjórnvalda í tilefni undirritunar samkomulagsins.

30.000 fermetrar fyrir 3.000 nemendur

Tækniskólinn er stærsti framhaldsskóli landsins og byggir á merkri sögu sem tengist atvinnulífi landsins.

Nýtt og betra húsnæði Tækniskólans markar umbyltingu í aðstöðu til iðn-, starfs- og tæknináms og verður starfsemin loks sameinuð undir einu þaki. Undir Tækniskólanum starfa átta undirskólar sem hafa faglegt sjálfstæði; Bygg­inga­tækni­skólinn, Hönn­unar- og hand­verks­skólinn, Raf­tækni­skólinn, Skip­stjórn­ar­skólinn, Tækniaka­demía, Tækni­mennta­skólinn, Upp­lýs­inga­tækni­skólinn og Vél­tækni­skólinn.

Byggingin mun telja 30.000 fermetra og mun rúma 3.000 nemendur í námunda við fjölbreytta atvinnustarfsemi. Einnig er gert ráð fyrir frekari stækkunarmöguleikum á lóðinni til framtíðar. Áætlaður heildarkostnaður er 27 ma. kr. á verðlagi janúar 2023 samkvæmt áætlun verkefnisstjórnar.

Vinsældir tæknináms aukast

Mikil ásókn er hjá ungmennum í tækninám á framhaldsskólastigi um þessar mundir. Greint var frá því í fréttum á dögunum að flestar umsóknir hafi borist um nám í Tækniskólanum í ár eða 833 umsóknir - þar sem Tækniskólinn var ýmist settur í val eitt eða tvö. Næst á eftir kom Kvennaskólinn í Reykjavík.

Í vor brautskráðust alls um 580 nemendur af 53 námsbrautum Tækniskólans og er það fjölmennasta útskrift skólans frá upphafi.