9. nóvember 2026

Upptaka og glærur frá Sjávarútvegsdeginum 2026

Sjávarútvegsdagurinn 2026 fór fram á dögunum undir yfirskriftinni Vegir liggja til allra átta. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök atvinnulífsins og Deloitte standa að deginum.

Á fundinum var farið yfir afkomu sjávarútvegs og fiskeldis, stöðu greinarinnar á alþjóðlegum mörkuðum og þau tækifæri og áskoranir sem fram undan eru. Meðal framsögumanna voru Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, Lovísa Finnbjörnsdóttir, forstjóri Deloitte, Ragnar Nystøyl, aðalgreinandi hjá Kontali, og Orri Hauksson, stjórnarformaður First Water.

Fundurinn var tekinn upp í heild sinni og hægt er að horfa á hann hér að ofan. Þar er einnig hægt að sækja glærur framsögumanna hér að neðan.

Setning og fundarstjórn
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS
Glærur framsögumanns

The battle for the global whitefish consumer
Ragnar Nystøyl, greinandi hjá norska greiningarfyrirtækinu Kontali
Glærur framsögumanns

Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja og fiskeldis árið 2025
Lovísa Finnbjörnsdóttir, forstjóri Deloitte á Íslandi
Glærur framsögumanns

Landeldi - náttúrlegt samkeppnisforskot fyrir Ísland
Orri Hauksson, stjórnarformaður First Water
Glærur framsögumanns