28. nóvember 2026

Sorg og þakklæti

Þrír skipverjar á Jökli ÞH fórust á miðvikudagskvöldið, fjórtán var bjargað. Björgunin er guðsblessun en þrír látnir skipverjar er þremur skipverjum of mikið. Sjómenn um borð í Jökli sýndu fádæma þolgæði og æðruleysi í ólýsanlegum sjávarháska. Björgunaraðilar allir unnu þrekvirki við afar grimmar aðstæður og fyrir það ber að þakka. Sérstaklega ber að þakka þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar fyrir hennar hlut. Hún vann þar mikla dáð. Ekki er óvarlegt að fullyrða að hún hafi lagt sig í meiri hættu en hægt er að ætlast til. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi senda öllum þeim sem um sárt eiga að binda samúðarkveðju.