10. september 2000

Vísindaferð á Vestfirði (Myndir)

Það er áskorun að bjóða háskólanemum í Reykjavík í vísindaferð um sjávarútveg og fiskeldi. Starfsemin og áhrif hennar sést nefnilega best úti á landi.

Þess vegna var sérstaklega gaman að fara með 12 nemendur úr Háskólanum í Reykjavík vestur á firði í síðustu viku. 

Hópurinn heimsótti Arctic Fish, Kerecis, Háafell og Jakob Valgeir. Fengu að borða lax og þorsk sem alinn er í fjörðunum eða veiddur á vestfjarðarmiðum á Tjöruhúsinu og enduðu svo kvöldið í nýju Bryggjusánunni sem ungir framtakssamir Vestfirðingir opnuðu fyrir stuttu síðan.

Við þökkum nemendunum fyrir komuna og fyrirtækjunum fyrir að gera þessa ferð mögulega. Vestfirðir eru kannski ekki efst í huga háskólanema á höfuðborgarsvæðinu en gróskan þar er mikil og tækifærin sömuleiðis.

XXXXX vinnslustjóri Drimlu sýnir nemendum nýjustu tækni og vísindi

Daníel Jakobsson framkvæmdastjóri Arctic Fish spjallar við hópinn

Heimsóknin í Kerecis vakti mikla lukku

XXXXXX tók á móti hópnum hjá Kerecis

Ship-o-hoj

Þú veltir fyrir þér hvað þetta er kannski? Þetta er laxafóður

Gauti Geirsson framkvæmdastjóri Háafells fór með þeim út í kvíar

Tilvalið fyrir skrifstofufólk í bænum að setja þetta sem skjáhvílu í tölvunni, láta sig dreyma um Djúpið

Glæsilegur hópur nemenda úr Háskólanum í Reykjavík. Framtíðin er björt.