8. desember 2021
Orkuskipti á hafi
Samorka, ásamt Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Faxaflóahöfnum og Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, bjóða til kynningar DNV á nýrri skýrslu um orkuskipti á hafi. Kynningin verður haldin í Kaldalóni, Hörpu, miðvikudaginn 8. desember.
Dagskrá:
Ávarp: Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
Leiðir til kolefnishlutleysis í haftengdri starfsemi: Nicolai Hydle Rivedal, umhverfisverkfræðingur hjá DNV
Pallborðsumræður:
Gunnar Tryggvason, sviðsstjóri viðskipta hjá Faxaflóahöfnum
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS
Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku
Fundarstjóri: Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku
Allir velkomnir í Hörpu og aðgangur er ókeypis. . Vinsamlegast skráið ykkur í sæti hér: https://tix.is/is/harpa/buyingflow/tickets/12509/60564/...
Viðburðinum verður einnig streymt á samorka.is.